Guðmundur efstur



Guðmundur Kjartansson (2314) er efstur á Haustmóti TR með 5 vinninga að lokinni 6. umferð sem fram fór í kvöld.  Guðmundur vann Björn Jónsson (2045).  Davíð Kjartanssyni (2291), sem vann Þorvarð F. Ólafsson (2174) er annar með 4½ vinning.   Sverrir Örn Björnsson (2158) og Jóhann H. Ragnarsson (2068) eru í 3.-4. sæti með 4 vinninga en sá fyrrnefndi vann þann síðarnefnda.   Sjöunda umferð fer fram föstudaginn 14. október og hefst kl. 19:30. 

A-flokkur:

Úrslit 6. umferðar:

 

1 Bergsson Stefan  ½ – ½ Bjornsson Tomas 
2 Bjornsson Sverrir Orn  1 – 0 Ragnarsson Johann 
3 Kjartansson Gudmundur  1 – 0 Jonsson Bjorn 
4 Baldursson Haraldur  1 – 0 Valtysson Thor 
5 Kjartansson David  1 – 0 Olafsson Thorvardur 

Staðan:

 

Rk.   Name RtgI Club/City Pts.  Rp rtg+/-
1 IM Kjartansson Gudmundur  2314 TR 5 2389 5,3
2 FM Kjartansson David  2291 Víkingar 4,5 2352 7,1
3   Bjornsson Sverrir Orn  2158 Haukar 4 2230 8,6
4   Ragnarsson Johann  2068 TG 4 2244 21,1
5 FM Bjornsson Tomas  2162 Goðinn 3 2126 -4,5
6   Olafsson Thorvardur  2174 Haukar 2,5 2110 -8,3
7   Bergsson Stefan  2135 SA 2,5 2091 -6
8   Valtysson Thor  2041 SA 1,5 1933 -12,6
    Jonsson Bjorn  2045 TR 1,5 1953 -10,8
10   Baldursson Haraldur  2010 Víkingar 1,5 1993 -2,5

 

Aðrir flokkar: 

Dagur Ragnarsson (1761) er langefstur í b-flokki með 5 vinninga.  Ingi Tandri Traustason (1823), Kristján Örn Elíasson (1906), Mikael Jóhann Karlsson, Stephen Jablon (1965) og Örn Leó Jóhannsson (1931) eru í 2.-6. sæti með 3½ vinning.  Sjá nánar hér.

Birkir Karl Sigurðsson (1597) og Oliver Aron Jóhannesson (1645) eru efstir í c-flokki með 5 vinninga.   Friðgeir Hólm (1667) er í þriðja sæti með 4 vinninga. 

Vignir Vatnar Stefánsson (1444) er langefstur í d-flokki (opnum flokki) með fullt hús.  Dawid Kolka (1366) og Sóley Lind Pálsdóttir (1345) eru í 2.-3. sæti með 4½ vinning.