Gauti Páll efstur á þriðjudagsmóti!



Margeir-og-Gauti-scaled

Gauti Páll Jónsson, varaformaður og Social Media Manager Taflfélags Reykjavíkur stóð uppi sem sigurvegari á þriðjudagsmótinu 29. júní með fullu húsi, eftir sigur í úrslitaskák gegn Torfa Leóssyni. Næstir, með þrjá vinninga, urðu Torfi, Hörður Jónasson, Þorsteinn Magnússon, Hjálmar Sigurvaldason og Hamed Gramizadeh.

17 manns mættu til leiks, sem verður að teljast nokkuð gott í skákmóti um hásumar. Athygli vakti að ekki ein einasta skák í mótinu endaði jafntefli, en alls voru tefldar 32 skákir. Það er fáránlegt.

Öll úrslit og stöðu mótsins má nálgast á chess-results.

Athugið að í sumar er teflt annan hvern þriðjudag, næsta mót á eftir þessu verður því þriðjudaginn 13. júlí klukkan 19:30.