Gauti með jafntefli í dag á EM ungmenna



Gauti Páll Jónsson (1739) gerði í dag jafntefli við úkraínska skákmanninn Danylo Musiienko (2011) í annarri umferð EM ungmenna.  Góð úrslit hjá Gauta sem teflir nú í fyrsta sinn á erlendri grundu en hann keppir í flokki 16 ára og yngri.  Í þriðju umferð á morgun hefur hann svart gegn slóvakíska skákmanninum Samuel Sepesi (2019) en viðureignin hefst kl. 11.

Oliver Aron Jóhannesson og Símon Þórhallsson töpuðu sínum skákum en þeir tefla í sama flokki og Gauti Páll.  Í flokki 18 ára og yngri tapaði Dagur Ragnarsson sinni viðureign.

  • Úrslit, staða og pörun
  • Heimasíða mótsins