Fyrsta Brim-mótið hefst á föstudaginn



Fyrsta mót Brim mótaraðarinnar verður haldið helgina 19.-21. júní næstkomandi, í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Eftir skákmótalausa tíma í samfélaginu hefur stjórn TR ákveðið að halda fyrsta mót mótaraðarinnar í sumar, en fyrsta mótið átti að vera síðastliðna páska. Auk þess munu hugsanlega einhver mót mótaraðarinnar færast yfir á vorið 2021.

Fyrirkomulag fyrsta mótsins:

Föstudagurinn 19. júní klukkan 19:30

1.-4 umferð. Atskákir með tímamörkunum 15+5

Laugardagurinn 20. júní klukkan 11: 5. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30

Laugardagurinn 20. júní klukkan 17: 6. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30

Sunnudagurinn 21. júní klukkan 11: 7.umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30.

 

Eftir mótið verður haldið 9. umferða hraðskákmót með tímamörkunum 3+2. Miðað verður við að það hefjist klukkan 16 á sunnudeginum. Sigurvegari hraðskákmótsins fær aukastig í stigakeppninni.

 

Þáttökugjöld: 4000kr.

2000kr. fyrir 17 ára og yngri

Ókeypis fyrir GM/IM og TR-inga 17 ára og yngri

Verðlaunafé í fyrsta mótinu:

  1. 15.000
  2. 10.000
  3. 8000

Skráningarform

Þegar skráðir keppendur

Verðlaunasjóður fyrir samanlagðan árangur í mótunum sex:

Heildarkeppnin:

  1. 125.000kr.
  2. 75.000kr.
  3. 50.000kr.

Efsta skákkonan: 33.000kr.

Efstur U1900 skákstigum, júní listinn 2020: 33.000kr.

Efstur 17 ára og yngri: 33.000

 

Stigakeppnin virkar þannig að stig eru veitt fyrir efstu 10. sætin. 1 stig fyrir 10. sæti, 2. stig fyrir 9. sæti og svo framvegis. Í 1. sæti í hverju móti verða hins vegar 12 stig veitt. Stigakeppnir  með sama sniði verða einnig notaðar til að reikna út aukaverðlaunin. Fjögur bestu mót hvers þáttakanda gilda í stigakeppninni

 

Almenn Kynning á Mótaröðinni: 

 

Taflfélag Reykjavíkur kynnir með stolti, í samstarfi með þremur félögum, Skákfélagi Akureyrar, Skákfélagi Selfoss og nágrennis og Skákfélaginu Hugin, BRIM Skákmótaröðina 2020!

Haldin verða sex helgarskákmót, þrjú í TR, eitt á Norðurlandi, eitt á Selfossi og eitt á Húsavík. Á föstudegi verða tefldar fjórar atskákir, á laugardegi tvær kappskákir og á sunnudegi ein kappskák.

Brim er aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar ásamt Skáksambandi Íslands. Keppt verður um glæsileg verðlaun; 350.000 króna verðlaunasjóður er fyrir bestan samanlagðan árangur. Það verður stigakeppni þar sem fjögur bestu mót hvers skákmanns gilda.