Fyrsta Bikarsyrpan tímabilið 2023-2024 haldin 6.-8. október!



Helgina 6.-8. október fer fram mót í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er fyrsta mótið af fimm sem haldið er á tímabilinu 2023-24. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur Faxfeni 12.

BikarsyrpanBanner_generic

Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.

Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2008 eða síðar) sem ekki hafa náð 1800 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

Fimmta mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 6. október og stendur til sunnudagsins 8. október. Tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.

Dagskrá:

  1. umferð: 6. október kl. 17.30 (fös)
  2. umferð: 7. október kl. 9.00 (lau)
  3. umferð: 7. október kl. 13.00 (lau)
  4. umferð: 7. október kl. 16.00 (lau)
  5. umferð: 8. október kl. 10.00 (sun)
  6. umferð: 8. október kl. 13.00 (sun)
  7. umferð: 8. október kl. 16.00 (sun)

Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni 7. umferð.

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Merkja skal við fyrirhugaðar yfirsetur í neðangreindu skráningarformi. Annars skal tilkynna skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 15 mínútum eftir að viðkomandi umferð hefst.

Þátttökugjald í mótið er 2.000kr. Systkynaafsláttur er 50%. Börn sem eru félagar í TR greiða ekki þátttökugjald.

Sigurvegari hvers móts sem og efsta stúlkan hljóta að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sæti og 3. sæti. Veglegur farandbikar verður veittur næsta vor fyrir besta samanlagðan árangur í mótum vetrarins og gilda þá mest fjögur mót. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir besta samanlagðan árangur (fjögur mót) fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sæti gefur 5 einkatíma, 2. sæti gefur 3 einkatíma og 3. sæti gefur 2 einkatíma.

Skráning fer eingöngu fram í gegnum skráningarform hér að neðan. Hlökkum til að sjá ykkur!

Skráningarform

Þegar skráðir

Fyrirspurnum er hægt að senda á netfangið taflfelag@taflfelag.is