Fimmtudagsmót í kvöld



Að venju fer fram fimmtudagsmót T.R. í kvöld kl. 19.30.  Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.

Mótin fara fram í félagsheimili T.R., skákhöllinni að Faxafeni 12, og opnar húsið kl. 19.10.  Glæsilegur verðlaunapeningur er í boði fyrir sigurvegarann.

Mótin eru öllum opin og er aðgangseyrir kr. 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt er fyrir 15 ára og yngri.  Boðið er upp á kaffi ásamt léttum veitingum án endurgjalds.

ATH.  Fyrir mótið verður Sigurbjörn Björnsson með bókakynningu, en hann hóf nýverið innflutning á skákbókum frá Gambit forlaginu sem er stærsti skákbókaútgefandinn á markaðnum í dag.  Tilvalið að mæta og kynna sér gæðaskákbækur á góðu verði en kynningin hefst strax um kl. 19.