Vignir Vatnar Stefánsson og Veronika Steinunn Magnúsdóttir unnu bæði í lokaumferð Evrópumeistaramóts ungmenna sem lauk í gær en bæði höfðu þau gert jafntefli í næstsíðustu umferðinni.
Eftir góðan fyrri hluta hjá Vigni vann hann aðeins eina viðureign af síðustu fjórum sem gerði út um vonir um toppbaráttu. Hann hlaut 6 vinninga í skákunum níu og hafnaði í 11.-24. (13.) sæti en hann var númer 12 í stigaröð keppenda. Árangur Vignis samsvarar 1683 stigum og hann lækkar um 10 stig. Ekki besta mót Vignis sem kemur þó reynslunni ríkari inn í næsta Evrópumót þar sem hann mun fara upp um aldursflokk. Vignir Vatnar er aðeins tíu ára gamall og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í skákinni.
Veronika átti góðan endasprett en á brattann var að sækja í upphafi móts enda var hún með stigalægstu keppendunum í sínum flokki. Eftir að tapa fyrstu fimm skákunum vann hún tvær af síðustu fjórum og gerði tvö jafntefli. Hún hlaut 3 vinninga og árangur hennar samsvarar 1490 stigum og lækkar hún um 15 stig. Fín frammistaða hjá Veroniku á hennar fyrsta Evrópumóti og hún kemur reynslunni ríkari heim til Íslands.
Taflfélag Reykjavíkur er stollt af því að eiga svo flotta fulltrúa á Evrópumeistaramótinu og þá má jafnframt benda á að alls fóru átta glæsilegir fulltrúar á mótið fyrir Íslands hönd en nánar má lesa um frammistöðu þeirra á skak.is.
Vignir og Veronika koma nú heim þar sem þau keppa fyrir hönd T.R. í Íslandsmóti skákfélaga um næstu helgi.
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins
- Skákir Vignis
- Skákir Veroniku