Vegna fyrsta móts Bikarsyrpu TR verður fyrirkomulag skákæfinga nú um helgina með eftirfarandi hætti:
Laugardagur 10. september
- 10:40-11:00 Byrjendaflokkur I (Manngangskennsla).
- 11:15-12:15 Byrjendaflokkur II (Fyrir börn sem kunna mannganginn).
- 12:30-13:45 Skákæfing stúlkna.
- 14:00-16:00 Laugardagsæfing (opnar æfingar) – fellur niður vegna Bikarsyrpunnar.
- 16:10-17:40 Afreksæfing A.
Sunnudagur 11. september:
- 10:45-12:15 Afreksæfing B – fellur niður vegna Bikarsyrpunnar.
Jafnframt hvetjum við ykkur krakkar sem hafið verið að sækja skákæfingar félagsins, eða annarra félaga, til að vera með í Bikarsyrpunni enda er um afar gott æfingarmót að ræða sem jafnast á við margar skákæfingar. Upplýsingar um Bikarsyrpuna má sjá hér og hægt er að skrá sig til leiks hér. Bikarsyrpan hefst í dag föstudag kl. 17:30.