Dagskrá Anatoly Karpovs á meðan á dvöl hans stendur 6. – 10. október
Koma Karpovs er samstarfsverkefni Taflfélags Reykjavíkur, CCP og MP banka
Fimmtudagur 06. október
15.00 Anatoly Karpov lendir á Keflavíkurflugvelli
17.00 – 19.00    Móttaka fyrir Karpov í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12 fyrir  boðsgesti.  
 Þetta er jafnframt afmæliskaffiboð  félagsins sem er 111 ára þennan dag.  
Föstudagur 07. október
10.30 – 11.30   Karpov heimsækir Salaskóla.  
 Krakkar frá Rimaskóla  sem nýverið urðu Norðurlandameistarar grunnskóla í skák verða í heimsókn.   Karpov mun ræða við börnin um skákina og taka tvær skákir við afreksbörn úr  hvorum skóla.  
14.00 – 16.00 Karpov heimsækir CCP og skoðar starfsemi fyrirtækisins.
16.30 – 17.30   Karpov og Friðrik Ólafsson tefla sýningarskák með 10 -15 mínútna umhugsunartíma  í húsakynnum Taflfélagsins Faxafeni 12.  
 Eftir  skákina munu meistararnir fara yfir hana og skýra út fyrir áhorfendum.  Opið  almenningi.  
20.00 Karpov verður viðstaddur setningu Íslandsmóts Skákfélaga sem fram fer í Rimaskóla og er stærsti einstaki skákviðburður landsins á hverju ári.
Laugardagur 08. október
14.00 – 14.45 Karpov heimsækir UNICEF á Íslandi, en hann er einmitt sérlegur sendiherra samtakanna í mið og austur Evrópu.
15.00 – 16.00 Karpov mætir á skákæfingu hjá barna og unglingadeild Taflfélagsins að Faxafeni 12.
Hann mun ræða við krakkana um skák, halda skákskýringar og árita myndir fyrir krakkana.
Sunnudagur 09. október
16.00 – 17.30 Karpov teflir fjöltefli við 20 manns í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Allir velkomnir í Ráðhús Reykjavíkur.
 Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins
				