Borgarskákmótið fer fram þriðjudaginn 17. ágúst, og hefst það kl. 14:00. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur Taflfélag Reykjavíkur að mótinu.
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst í skráningarforminnu til að liðka fyrir mótshaldi.
Þetta er í 36. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar verði á meðal keppenda. Í fyrra sigraði Vignir Vatnar Stefánsson, sem þá tefldi fyrir Húsasmiðjuna.
Verðlaun:
1.sæti 30.000 kr.
2.sæti 20.000 kr.
3.sæti 10.000 kr.
Mótið er hluti af Sumarmótaröð Reykjavíkur 2021.
Stigaútreikningur í mótinu:
- Bucholz -1
- Bucholz
- Sonneborn-Berger
- Innbyrðis úrslit
Í sumarmótaröðinni er keppt um 200.000 króna verðlaunasjóð. Stigakeppni sumarmótaraðarinnar virkar þannig að stig eru veitt fyrir efstu 10. sætin. 1 stig fyrir 10. sæti, 2. stig fyrir 9. sæti og svo framvegis. Í 1. sæti í hverju móti verða hins vegar 12 stig veitt. Stigakeppnir með sama sniði verða einnig notaðar til að reikna út aukaverðlaunin. Þrjú bestu mót hvers þáttakanda gilda. Hin mótin í sumarmótaröðinni eru Mjóddarmótið, Viðeyjarmótið og Borgarskákmótið.
Staða efstu manna í sumarmótaröðinni að Mjóddarmóti og Viðeyjarmóti loknu:
- Davíð Kjartansson 24 stig
- Arnar Gunnarsson 14 stig
- Vignir Vatnar Stefánsson 12 stig
- Ingvar Þór Jóhannesson 9 stig
- Jón Viktor Gunnarsson 8 stig
- Dagur Ragnarsson, Guðmundur Kjartansson og Tómas Björnsson 7 stig