Einn af reyndustu og sterkustu skákmönnum Taflfélags Reykjavíkur, Björn Þorsteinsson (2283), hefur sagt skilið við félagið og er genginn til liðs við skákfélagið Goðann. Björn tefldi síðast fyrir T.R. í seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga en hann hefur tvisvar hampað Íslandsmeistaratitlinum í skák, árin 1967 og 1975.
Stjórn T.R. óskar Birni góðs gengis hjá nýju félagi og þakkar honum samveruna í gegnum árin.