Björn Þorfinnsson skákmeistari Reykjavíkur



Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2406) varð í kvöld skákmeistari Reykjavíkur í þriðja sinn og í annað árið í röð. Björn vann Guðmund Kjartansson (2326) í kvöld. Einni skák í úrslitakeppninni er ólokið, skák Braga Þorfinnssonar (2426) og Guðmundar Kjartansson (2306) en hvorugur þeirra getur náð Birni að vinningum.

Staðan:
1. Björn Þorfinnsson (2406) 3 v. af 4
2.-3. Guðmundur Kjartansson (2326) og Bragi Þorfinnsson (2426) 1 v. af 3