Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 25. október í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Taflið hefst kl.14.
Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi með umhugsunartímanum 15 mín. á skák.
Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í opna flokknum og þar fyrir utan hlýtur efsti T.R.-ingurinn titilinn Unglingameistari T.R. 2015.
Þá verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í stúlknaflokknum og þar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan úr T.R. titilinn Stúlknameistari T.R. 2015.
Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í aldursflokknum 13-15 ára (f. 2000-2002), 11-12 ára (f. 2003-2004), 9-10 ára (f. 2005-2006) sem og 8 ára og yngri (f. 2007 og síðar)í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).
Mótið er opið öllum krökkum 15 ára og yngri (fædd 2000 og síðar).
Aðgangur á mótið er ókeypis.