Mótinu hefur verið frestað og betri mótstími verður fundinn!
**********************
Mótatilkynning eins og hún var:
Atskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsakynum TR, Faxafeni 12, 9-10. desember næstkomandi. Tefldar verða níu skákir með tímamörkunum 10+5 (10 mínútur á skákina að viðbættum fimm sekúndum á hvern leik) á tveimur kvöldum.
Atskákmót Reykjavíkur var lengst af haldið af Skákfélaginu Helli, síðar Huginn, en síðan 2019 hefur TR séð um mótahaldið. Mótið var hér áður fyrr haldið af TR, en það var haldið fyrst árið 1992. Mótið er öllum opið. Núverandi atskákmeistari Reykjavíkur er Vignir Vatnar Stefánsson en árið áður var það Aleksandr Domalchuk-Jonasson. Atskákmeistarar Reykjavíkur frá upphafi.
SKRÁNINGARFORM
Þátttökugjöld:
Fullorðnir: 3000 kr. 17 ára og yngri: 1500 kr. Stórmeistarar borga ekki þátttökugjöld.
Verðlaun:
1. 30.000.-
2. 20.000.-
3. 10.000.-