Alexander og Stephan áfram í Barna-Blitz



barnablitz

Alexander Oliver Mai og Stephan Briem urðu hlutskarpastir í undanrás TR fyrir Barna-Blitz sem fer fram í Hörpu þann 13. mars.  Tíu keppendur mættu til leiks og tefldu allir við alla og var þó nokkuð um óvænt úrslit.  Svo fór að Alexander og Stephan komu jafnir í mark með 7,5 vinning en næstir með 6,5 vinning voru Kristján Dagur Jónsson og Róbert Luu.  Heildarúrslit má skoða hér.