Afmælismót Einars Ben-Margir sterkustu skákmenn landsins með



Afmælismót Einars Ben

Afmælisskákmót Einars Benediktssonar verður haldið á veitingastaðnum Einari Ben, laugardaginn 1. nóvember klukkan 14. Meðal keppenda verða margir af bestu skákmönnum Íslands. Tefldar verða sjö umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Að mótinu standa Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagið Hrókurinn.

 

Þjóðskáldið Einar Benediktsson fæddist 31. október 1864 og lést árið 1940. Hann var ástríðufullur skákmaður og meðal stofnenda Taflfélags Reykjavíkur um aldamótin 1900. 

Í ljóðinu Væringjar nota skáldið líkingamál úr skákinni með eftirminnilegum hætti:

 

Vort heimslíf er tafl fyrir glöggeygan gest

þar sem gæfan er ráðin ef leikurinn sést.

 

Einar tók þátt í fyrsta opinbera skákviðburðinum á Íslandi sem sögur fara af, þegar hann tefldi sýningarskák á þjóðhátíð í Reykjavík 1901 með lifandi taflmönnum gegn Pétri Zóphóníassyni, sem var besti skákmaður landsins í upphafi 20. aldar. Fjöldi áhorfenda fylgdist með skákinni, sem lauk með jafntefli.

Þá var Einar mjög áhugasamur um málefni Grænlands, en þar hefur Hrókurinn staðið að útbreiðslu skáklistarinnar síðan 2003. Það fer því einkar vel á því að TR og Hrókurinn minnist skáldsins í sameiningu á hinum merku tímamótum. Veitingahúsið Einar Ben, Veltusundi 1 við Ingólfstorg, gefur veglega vinninga, m.a. gjafakort og bækur með ljóðum þjóðskáldsins.

 

Margir meistarar þegar skráðir til leiks. Það er sérstakt ánægjuefni að Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslands og fv. forseti FIDE, mun tefla á mótinu. Friðrik, sem verður 80 ára í janúar, var um árabil meðal sterkustu skákmanna heims og bar hróður Íslands víða. Hann tefldi sína fyrstu kappskák á Íslandsmóti árið 1946, þegar hann var 11 ára gamall.

 

Fleiri nafntogaðir meistarar heiðra minningu skáldsins með þátttöku á mótinu, m.a. stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, Jón L. Árnason, Þröstur Þórhallsson og Hjörvar Steinn Grétarsson, og alþjóðlegu meistararnir Björn Þorfinnsson og Jón Viktor Gunnarsson. Alls verða keppendur 40 og í þeim hópi verða mörg bestu og efnilegustu börn og ungmenni landsins.

 

Áhorfendur eru hjartanlega velkomnir.

 

Nánari upplýsingar:

Björn Jónsson formaður Taflfélags Reykjavíkur, sími 899 9268

Hrafn Jökulsson forseti Skákfélagsins Hróksins, sími 6950205