ÆSKAN OG ELLIN – skákmótið þar sem kynslóðirnar mætast, verður haldið á sunnudaginn kemur, þann 20. október, í Skákhöllinni í Faxafeni.
TAFLFÉLG REYKJAVÍKUR og RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu með stuðningi JÓA ÚTHERJA – leiðandi fyrirtækis á sportvörumarkaði – standa saman að mótshaldinu. Mótið hefur eflst að vinsældum með árunum og skipar nú fastan sess í skáklífinu.
Mótið fer nú fram í 16. sinn. Fyrstu 9 árin var mótið haldið í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, þar sem Riddarinn hefur aðsetur sitt og eldri skákmenn hittast til tafls vikulega allan ársins hring, en nú síðustu 6 árin í samsstarfi við TR- elsta og öflugasta taflfélag landins. Þessi mót – þar sem kynslóðirnar mætast – hafa jafnan verið fjölsótt jafnt af yngri sem eldri skákmönnum og afar vel heppnuð. Yfir 80 ára aldursmunur er hefur iðulega verið milli yngsta og elsta keppandans.
Þátttaka í mótinu er ókeypis og miðast við börn og ungmenni á grunnskólaaldri 15 ára og yngri, og roskna skákmenn 60 ára og eldri. Mótið hefst kl. 13 og verða tefldar 9 umferðir með 6 mínútna umhugsunartíma auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik (6+2).
Vegleg verðlaun og viðurkenningar. Auk aðalverðlauna verða veitt aldursflokkaverðlaun í 3 flokkum ungmenna og öldunga. Annars vegar fyrir þrjú efstu sæti í barna og unglinga-flokkum, 9 ára og yngri; 10-12 ára og 13-15 ára og hins vegar fyrir efstu menn í 3 öldunga-flokkum, 60-69 ára; 70-79 ára og 80 ára og eldri. Auk þess fær sú yngismær sem bestum árangri nær og yngsti og elsti keppandi mótsins sérstök þakkarverðlaun
Mótsnefnd skipa þeir Einar S. Einarsson, erkiriddari/formaður Riddarans, Ríkharður Sveinsson, formaður TR, og Þórir Benediktsson, hirðmaður.
Skráning til þátttöku fer fram í skráningarformi á www.skak.is og www.taflfelag.is. Hámarksfjöldi keppenda miðast við 80 og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst og/eða mæta tímanlega á mótsstað. Hér má sjá lista yfir skráða keppendur.