Anh Hai Tran sigurvegari Friðrikssyrpu IV, Katrín Ósk Tómasdóttir efst stúlkna



Helgina 10-12 apríl fór fram fjórða mótið í Friðrikssyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Að þessu sinni voru  57 keppendur mættir til leiks.

Strax í annarri umferð voru óvænt úrslit á efsta borði þegar Óðinn Darri og Pétur Úlfar mættust. Eftir frekar látlausa stöðu skiptist upp í peðaendatafl og skákin fjaraði út í jafntefli.

20260411_094757

Á meðan hélt Anh hai Tran sigurgöngu sinni alveg fram í loka umferð mótsins.

Fyrir lokaumferðina var Anh hai einn efstur með fullt hús. Eini sem gat náð honum var Pétur Úlfar og mættust þeir í loka umferðinni.

Anh Hai Tran og Pétur Úlfar í lokaumferðinni

Anh Hai Tran og Pétur Úlfar í lokaumferðinni

Eftir að hafa verið peði undir í byrjuninni endaði Pétur síðan peði yfir í endataflinu og vann skákina frekar sannfærandi. Enduðu þeir þá báðir jafnir með sex vinninga en Anh hai var ofar á oddastigum.

Dagur Sverrisson og Emil Fenger Finnsson

Dagur Sverrisson og Emil Fenger Finnsson

Með sigri í lokaumferðinni enduðu Dagur Sverrisson og Katrín Ósk bæði jöfn með 5½ vinning en Katrín Ósk reyndist hærri á oddastigum og fékk fyrir það 3.sætið í mótinu.

Lokastaðan eftir 7.umferðir

Lokastaðan eftir 7.umferðir

Anh Hai Tran, Katrín Ósk Tómasdóttir

Anh Hai Tran, Katrín Ósk Tómasdóttir

🥇Anh Hai Tran 6 (29,5)

🥈Pétur Úlfar Ernisson 6 (25,5)

🥉Katrín Ósk Tómasdóttir 5½

Halldóra Jónsdóttir, Katrín Ósk Tómasdóttir, Emilía Sigurðardóttir

Halldóra Jónsdóttir, Katrín Ósk Tómasdóttir, Emilía Sigurðardóttir

🥇Katrín Ósk Tómasdóttir 5½

🥈Halldóra Jónsdóttir 5

🥉Emilía Sigurðardóttir 4

 Taflfélag Reykjavíkur vill þakka keppendum fyrir þátttöku á mótinu og vonast til að sjá sem flesta á næsta móti. Lokamót Friðrikrssyrpunnar fer fram fyrstu helgina í maí (1-3 maí).

Hægt er að sjá lokastöðu mótsins á úrslitasíðu mótsins á Chess-results: Friðrikssyrpa T.R IV

Hægt er að sjá myndir frá mótinu á myndasíðu Skáksambandsins Friðrikssyrpa IV 2026 | Flickr