Páskahraðskákmót TR verður á morgun!



Páskahraðskákmót TR fer fram laugardaginn 4. apríl klukkan 13:00. Tefldar verða 11. umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Gera má ráð fyrir að mótið standi til 15:30.

Þátttökugjöld: 1000 krónur. 500 krónur fyrir 17 ára og yngri og ókeypis fyrir 17 ára og yngri í TR, og alla alþjóðlega- og stórmeistara.

Skráning verður á staðnum. Húsið opnar 12:30 og verður tekið við skráningu á staðnum til 12:50. E.t.v verður rafrænu skráningarformi einnig bætt við þessa frétt, til að flýta fyrir.

Núverandi páskahraðskákmeistari er Vignir Vatnar Stefánsson.

Frétt um mótið 2025

Verðlaun

3. sæti: Páskaegg

2. sæti: Stærra páskaegg

1. sæti: Ennþá stærra páskaegg

Unglingaverðlaun (grunnskólaaldur): Líka páskaegg