Reykjavíkurmótið í skólaskák verður 13. apríl í TR



rvk_skolaskak_2025

Reykjavíkurmótið í skólaskák fer fram mánudaginn 13. apríl í Taflfélagi Reykjavíkur að Faxafeni 12. Seltjarnarnes fellur að þessu sinni einnig undir Reykjavíkurkjördæmi fyrir landsmótið í skólaskák.

Teflt verður í þremur einstaklingsflokkum 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppnisrétt hafa þeir krakkar í reykvískum grunnskólum sem teflt hafa með a-sveit síns skóla í einhverri af sveitakeppnum þessa skólaárs (2025-2026). Auk þess hafa allir krakkar úr reykvískum skólum sem hafa skákstig keppnisrétt. Telji skákkennarar/aðstandendur einhverja sem falla ekki undir ofangreind skilyrði eiga erindi á mótið er velkomið að senda fyrirspurn á mótsstjóra.

Dagskrá:

1.-4. bekkur: 16:30–18:30

5.-7. bekkur: 19:00-21:00

8.-10. bekkur 19:00-21:00 (samtímis 5.-7. bekk)

Mótsstjóri: Gauti Páll Jónsson (gauti.pall.jonsson@reykjavik.is)

ATH: Mæting og staðfesting þátttöku er í síðasta lagi 10 mínútum áður en mótið hefst.

Húsið opnar 16:00.

Þátttökugjöld eru 1000kr. á mann

Umferðarfjöldi og tímamörk verða endanlega ákveðin þegar skráning liggur fyrir en má gera ráð fyrir 7 umferðum í hverjum flokki með umhugsunartíma 5+3.

Skráningarfrestur er til 22:00 sunnudaginn 12. apríl 

Efstu þrjú í hverjum flokki hljóta keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák, sem verður á þessu ári í Ólafsvík. Oddastigaútreikningur ræður um landsmótssætin, ef jafnt er á vinningum.

Oddastig (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger.

 

Skráning fer fram hér að neðan og skráning er staðfest með greiðslu þátttökugjalds.

Skráningarform

Greiðsla þátttökugjalds 

Listi yfir þegar skráða keppendur verður birt á chess-results þegar nær dregur og uppfært daglega fram að móti.