Daði hraðskákmeistari TR



Miðvikudaginn 25. september fór fram Hraðskákmót T.R. Mótið ákvarðar hraðskákmeistara Taflfélags Reykjavíkur og jafnframt eru veitt verðlaun fyrir Haustmót Taflfélags Reykjavíkur.

Hraðskákmótið sjálft vann Vignir Vatnar Stefánsson en hann hafði betur í stigaútreikningum með jafnmarga vinninga og Dagur Ragnarsson, 8 af 9. Benedikt Briem hrifsaði þriðja sætið en Daði Ómarsson varð hraðskákmeistari TR sem hæsti TR-ingurinn á mótinu.

HradskakmotTR