Björn Þorfinnsson (2406) vann Guðmund Kjartansson (2326) í 2. umferð úrslitakeppni KORNAX mótsins – Skákþings Reykjavíkur sem fram fór í dag. Björn er efstur með 1,5 vinning. Keppnin heldur áfram á sunnudag kl. 14 en þá tefla Guðmundur og Bragi.
Staðan:
- Björn Þorfinnsson (2406) 1,5 v. af 2
- Bragi Þorfinnsson (2426) 0,5 v. af 1
- Guðmundur Kjartansson (2326) 0 v. af 1
Tefld verður tvöföld umferð og verður teflt á sunnudögum kl. 14 og á miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30. Teflt er í T.R.
- Heimasíða TR
- Chess-Results