Birkir Karl Sigurðsson sigraði á fimmtudagsmótinu 5. maí með fullu húsi (7 vinn. af 7 mögul.). Örn Leó lenti í 2. sæti með 5 vinninga. Keppendur voru 8 talsins og tefldu allir við alla. Björgvin Kristbergsson kom sjálfum sér á óvart og fékk 3 vinninga en hann vann líka frestaða skák úr Öðlingamóti TR í kvöld.
Lokastaðan í mótinu:
1. Birkir Karl Sigurðsson 7 v.
2. Örn Leó Jóhannsson 5 v.
3. Jón Úlfljótsson 4,5 v.
4.-6. Björgvin Kristbergsson 3 v.
4.-6. Gauti Páll Jónsson 3 v.
4.-6. Óskar Long Einarsson 3 v.
7. Guðmundur Gunnlaugsson 2,5 v.
8. Pétur Jóhannesson 0 v.