Skákþing Reykjavíkur hefst á morgun. Skráningu lýkur klukkan 22 í kvöld!



Skákþing Reykjavíkur 2023 hefst sunnudaginn 8. janúar kl. 13.00. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan. Ef taka á yfirsetu í 1. umferð skal merkja við það á neðangreindu skráningarformi. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu. Ekki eru leyfðar frestanir í mótinu.

Teflt er á sunnudögum klukkan 13 og miðvikudögum klukkan 18:30.

 

Dagskrá

  1. umferð sunnudag 8. jan 13:00
  2. umferð miðvikudag 11. jan 18:30
  3. umferð sunnudag 15. jan 13:00
  4. umferð miðvikudag 18. jan 18:30
  5. umferð sunnudag 22. jan kl. 13:00
  6. umferð miðvikudag 25. jan 18:30
  7. umferð sunnudag 29. jan 13:00
  8. umferð miðvikudag 1. feb 18:30
  9. umferð sunnudag 5. feb 13:00

 

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram miðvikudaginn 8. febrúar klukkan 19:30.

Tímamörk

90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.

Skákstjórn

IA Ríkharður Sveinsson (s. 772 290)

Aðalverðlaun

  • 1. sæti kr. 100.000
  • 2. sæti kr. 50.000
  • 3. sæti kr. 30.000

Aukaverðlaun

Aukaverðlaun verða þannig að frá og með 11. skákmanni miðað við upphafsröð í mótinu (strarting rank) verður skákmönnum, þaðan og niður, skipt í fjórar jafnstórar stigagrúbbur. Sem dæmi: Taki 50 manns þátt í mótinu þá væri þetta svona:

Efstu 10 keppa ekki um aukaverðlan, heldur aðalverðlaun.

Keppendur númer 11.-20.í upphafsröð keppa um aukaverðlaun A.

Keppendur númer 21.-30. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun B.

Keppendur númer 31.-40 í upphafsröð keppa um aukaverðlaun C.

Keppendur númer 41.-50 í upphafsröð keppa um aukaverðlaun D.

Sá sem endar mótið efstur í A grúbbu vinnur því aukaverðlaun A, og svo framvegis.

Aukverðlaun í öllum flokkunum fjórum eru 12.500 krónur.

 

Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.

Þátttökugjöld 

kr. 6.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri (frítt fyrir félagsmenn TR).

Keppendur staðfesti þáttöku með því að millifæra þáttökugjöld til TR og með að senda póst á taflfelag@taflfelag.is (Rn: 0101-26-640269 Kt: 640269-7669) 

FRESTUR TIL AÐ TILKYNNA ÞÁTTTÖKU ER TIL KL. 22.00 LAUGARDAGINN 7. JANÚAR

Skráningarform

Skráðir keppendur

 

Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2023 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Davíð Kjartansson.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.

Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.