15 efstir og jafnir á Kornax mótinu



Önnur umferð Kornax mótsins – Skákþings Reykjavíkur fór fram kvöld. Margar spennandi skákir voru tefldar í þessari umferð. Óvæntustu úrslit kvöldsins voru jafntefli  Jóhanns M. Karlssonar við Björn Þorfinnsson og sigur Kristínar T. Finnbogadóttur á Sævari Bjarnasyni. 15 manns eru með fullt hús eftir skákir kvöldsins. Næsta umferð fer fram á föstudag.  

Chess-results (staða – úrslit – pörun)