Vetrarmót öðlinga hefst á miðvikudagskvöld



Vetrarmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 30. október kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða sjö umferðir og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik.

 

Þetta nýja mót, sem nú er haldið í þriðja sinn, hefur fengið góðar viðtökur og er án efa góð viðbót í öfluga skákmótaflóru landans.  Fyrirkomulag mótsins hentar vel þeim sem ekki hafa tök á að tefla oft í viku eða yfir heila helgi því aðeins er teflt einu sinni í viku, á miðvikudagskvöldum kl. 19.30.  Dagskráin er því ekki stíf og jafnframt lýkur mótinu vel fyrir jólaösina.

 

Þátttökurétt hafa allir öðlingar fertugir (á árinu) og eldri.

 

Dagskrá:

  • 1. umferð miðvikudag 30. október kl. 19.30
  • 2. umferð miðvikudag 6. nóvember kl. 19.30
  • 3. umferð miðvikudag 13. nóvember. kl. 19.30
  • 4. umferð miðvikudag 20. nóvember kl. 19.30
  • 5. umferð miðvikudag 27. nóvember kl. 19.30
  • 6. umferð miðvikudag 4. desember kl. 19.30
  • 7. umferð miðvikudag 11. desember kl. 19.30

 

Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.

Þátttökugjald er kr. 4.000. Innifalið er frítt kaffi allt mótið.

Skráning fer fram á taflfelag.is.

 

  • Vetrarmót öðlinga 2012
  • Vetrarmót öðlinga 2011