Vetrarmót öðlinga hefst 31. október



Vetrarmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 31. október kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða sjö umferðir og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik.

 

Mótið er nú haldið í annað sinn en það fékk frábærar viðtökur í fyrra þegar 47 keppendur skráðu sig til leiks og var þátttökulistinn vel skipaður.  Meðalstig tíu stigahæstu keppendanna voru rúm 2.200 og næstu tíu tæp 2100.  Aðeins er teflt einu sinni í viku, á miðvikudagskvöldum kl. 19.30, og mótinu lýkur vel fyrir jól.

 

Þátttökurétt hafa allir öðlingar fertugir og eldri.

 

Dagskrá:

  • 1. umferð miðvikudag 31. október kl. 19.30
  • 2. umferð miðvikudag 7. nóvember kl. 19.30
  • 3. umferð miðvikudag 14. nóvember. kl. 19.30
  • 4. umferð miðvikudag 21. nóvember kl. 19.30
  • 5. umferð miðvikudag 28. nóvember kl. 19.30
  • 6. umferð miðvikudag 5. desember kl. 19.30
  • 7. umferð miðvikudag 12. desember kl. 19.30

 

Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.

Þátttökugjald er kr. 4.000. Innifalið er frítt kaffi allt mótið.

Skráning fer fram á taflfelag.is.

 

  • Vetrarmót öðlinga 2011