Unglinga- og stúlknameistaramót Rvk verða haldin í maí



Til stóð að Taflfélag Reykjavíkur héldi ofangreind mót í lok janúar en vegna óviðráðanlegra orsaka, s.s. fjölda annarra móta á þessum tíma, féllu þau niður.  Stjórn T.R. hefur því ákveðið nýjar dagsetningar fyrir mótin:

  • Unglingameistaramót Reykjavíkur verður haldið laugardaginn 9. maí 2009 í húsnæði T.R.
  • Stúlknameistaramót Reykjavíkur verður haldið sunnudaginn 10. maí 2009 í húsnæði T.R.

Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur mótum.