Töp í 4. umferð Politiken Cup



Daði Ómarsson (2091) og Atli Antonsson (1720) töpuðu báðir í fjórðu umferð Politiken Cup sem fram fór fyrr í dag.  Daði gegn danska Fide meistaranum, Tom Petri Petersen (2310), í ótefldri skák samkvæmt heimasíðu mótsins, en Atli gegn Dananum, Morten Nielsen (2006).  Á efstu borðum voru öll úrslit eftir bókinni, þ.e. sá stigahærri sigraði þann stigalægri.

Daði er með 2 vinninga 114.-199. sæti en Atli 0,5 vinning í 287.-299. sæti.

Alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377), Bjarni Jens Kristinsson (1985) og Ólafur Gísli Jónsson (1899) töpuðu allir í dag.

9 skákmenn eru efstir með fullt hús að lokinni fjórðu umferð en Bragi er efstur Íslendinganna með 3 vinninga.

Í fimmtu umferð sem hefst á morgun kl. 11 að íslenskum tíma mætir Atli Svíanum, Hannu L. Edvardsson (1300) en Daði hefur ekki verið paraður þegar þetta er skrifað.

Að þessu sinni eru 307 skákmenn skráðir í aðalmót Politiken Cup en þar af eru fimm Íslendingar og á meðal þeirra eru tveir úr Taflfélagi Reykjavíkur; Daði Ómarsson (2091) sem er einn efnilegasti skákmaður landsins og Atli Antonsson (1720), sem snýr nú aftur að skákborðinu eftir nokkurra ára hlé.  Aðrir Íslendingar á mótinu eru alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377) úr Taflfélagi Bolungarvíkur, Bjarni Jens Kristinsson (1985) úr Helli og Ólafur Gísli Jónsson (1899) úr KR.

Stigahæstur keppenda er rússneski stórmeistarinn, Vladimir Malakhov (2707)  en margir þekktir skákmenn taka þátt, s.s. danski stórmeistarinn, Peter Heine Nielsen (2680), hollenski stórmeistarinn, Sergei Tiviakov (2674) og rússneski stórmeistarinn, Alexey Dreev (2660).

Heimasíða mótsins