Þrír leiða á Skákmóti öðlinga



Ekki var mikið um óvænt úrslit þegar þriðja umferð Skákmóts öðlinga fór fram í gærkvöldi.  Á efsta borði sigraði alþjóðlegi meistarinn, Sævar Bjarnason, Siguringa Sigurjónsson.  Sævar er efstur með fullt hús vinninga ásamt Ögmundi Kristinssyni sem lagði Sigurjón Haraldsson og Sigurði Kristjánssyni sem vann Árna H. Kristjánsson.  Næst með 2,5 vinning koma Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir og Vignir Bjarnson.

Í fjórðu umferð sem fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld mætast m.a. Sævar og Ögmundur, Sigurlaug og Sigurður sem og Árni og Vignir.

  • Úrslit, staða og pörun
  • Skákir: 1  2  3  4  5  6  7
  • Myndir
  • Mótstöflur
  • Öðlingameistarar