Þriðjudagsmót hjá TR í kvöld – Stefnir í sterkt mót!



Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fjórar skákir og tímamörkin eru 15 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Þýsk-rússneski stórmeistarinn og Selfyssingurinn síkáti Alexander Donchenko (2660) mætir til leiks en hann tefldi með Skákfélagi Selfoss og nágrennis á Íslandsmóti skákfélaga á dögunum! Einnig má gera ráð fyrir þónokkrum sterkum íslenskum skákmönnum.