T.R. úr leik í hraðaskákkeppninni



Taflfélag Reykjavíkur mætti ofjarli sínum þegar það beið lægri hlut fyrir Taflfélagi Bolungarvíkur í undanúrslitum hraðskákkeppni taflfélaga sem fram fóru í Faxafeninu síðastliðið miðvikudagskvöld.  Leikar fóru þannig að Bolungarvík vann 48,5-23,5 en í hálfleik var staðan 27-9.

Hinn grjótharði hraðskáksnillingur, Arnar E. Gunnarsson, stóð sig best T.R.-inga með 8 vinninga af 12 en Bragi Þorfinnsson stóð sig best hjá Bolvíkingum og nældi í 7,5 vinning af 12.

Liðskipan og árangur:

T.R.

  • Arnar E. Gunnarsson 8 v. af 12
  • Guðmundur Kjartansson 7½ v. af 12
  • Sigurður Daði Sigfússon 4 v. af 12
  • Snorri Bergsson 3 v. af 12
  • Bergsteinn Einarsson ½ v. af 6
  • Benedikt Jónasson ½ v. af 9
  • Kristján Örn Elíasson 0 v. af 3
  • Björn Þorsteinsson 0 v. af 6

Bolungarvík:

  • Bragi Þorfinnsson 11 v. af 12
  • Þröstur Þórhallsson 10½ v. af 12
  • Stefán Kristjánsson 8 v. af 12
  • Jón Viktor Gunnarsson 5 v. af 9
  • Elvar Guðmundsson 4½ v. af 6
  • Magnús Pálmi Örnólfsson 4½ af 12
  • Halldór Grétar Einarsson 4 v. af 6
  • Guðmundur Daðason 1 v. af 3

Í hinni undanúrslitaviðureigninni sigraði Taflfélagið Hellir Skákfélag Akureyrar örugglega 54,5-17,5.

Hellir og Bolungarvík tefla til úrslita þann 11. september nk og fer viðureignin fram í Bolungarvík samhliða landliðsflokki í Skákþingi Íslands.