Skemmtikvöld í TR !



Hann veldur skelfingu og angist hjá sumum.  Vellíðan og hugarró hjá öðrum.  Hann er altalaður, eftir honum hefur verið beðið og hér kemur hann.

Úlfurinn 2014 fer fram nú á föstudagskvöldið á síðasta skemmtikvöldi ársins.

Tefldar verða stöður úr skákum hins magnaða sænska stórmeistara Ulf Andersson.  Fyrirkomulagið er það sama og var á Anöndinni 2014.  Allir skákmenn og þá sérstaklega pósameistarar landsins eru hvattir til að mæta, allavegana ef menn eiga óuppgerðar skák-sakir við Björn Þorfinnsson og Stefán Bergsson. Nú er tækifærið! 

Ekki er loku fyrir það skotið að óvæntur leynigestur mæti á svæðið.

Fyrirkomulagið verður eftirfarandi:

  1. Keppendur skipta milli sín tíu mínútum. Hver 100 ELO-stig sem munar á keppendum draga þá í sundur um eina mínútu í hvora átt. 200 stig tvær mínútur í hvora átt. Alveg niður í tvær mínútur gegn átta. 2 sekúndur bætast við hvern leik. Sá sem hefur minni tíma á klukkunni í upphafi skákar ræður hvoru megin hún stendur.  

  2. Tefldar verða stöður úr skákum Ulf Andersson

  3. Tefldar verða 12 skákir.

  4. Keppendur tefla innbyrðis eina skák með hvítt og eina skák með svart. (2. skáka viðureign milli keppenda)

  5. Tvær stöður úr skákum Ulf verða í boði í hverri viðureign.  Sá sem stýrir svörtu mönnunum í hvorri skák velur hvor staðan er tefld!  Hvítur á alltaf fyrsta leik í stöðunum.

  6. Önnur af stöðunum sem hægt er að velja úr í hverri umferð verður gerð opinber á fimmtudag, og keppendur geta því undirbúið sig og valið þá stöðu þegar þeir fá svart, ..eða ekki.

  7. Stöðurnar geta bæði verið úr þekktum byrjunum eða þegar þeim sleppir.

  8. Gerð verða tvö hlé til Billjardbarsferða meðan á mótinu stendur.

  9. Verðlaun:
    1.sæti 8000 króna úttekt á billjardbarnum í formi veitinga.
    2.sæti 5000 króna úttekt á Billjardbarnum í formi veitinga.
    3.sæti 2000 króna úttekt á Billiardbarnum í formi veitinga.

  10. Þátttökugjald er 500 krónur sem innheimt verður af festu og ákafa fyrir fyrstu umferð.

  11. Aldurstakmark er 20 ár og rétt er að geta þess að áfengisbann ríkir í húsakynnum Taflfélagsins.

  12. Sigurvegarinn hlítur nafnbótina Úlfurinn 2014 

Tekið skal fram að í vor verður haldin skemmtikvöldakóngakeppni þar sem Mórinn 2014,Karlöndin 2014, Úlfurinn 2014 og aðrir sigurvegarar skemmtikvöldanna munu mætast í uppgjöri þeirra bestu.

Úlfurinn 2014 er eitthvað sem enginn skák- áhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara. Skemmtikvöld TR eru frábær skemmtun og hafa notið mikilla vinsælda. 

Verið velkomin!