Skeljungsmótið – Skákþing Reykjavíkur hefst í dag



Skeljungsmótið 2009 – Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 11. janúar kl. 14. Tefldar verða 9 umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk 1½ klst. á alla skákina auk 30 sek. á leik. Umferðir fara fram á miðvikudögum og föstudögum kl. 19 og á sunnudögum kl. 14.  Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

 

Verðlaun:

1. sæti kr. 50.000

2. sæti kr. 30.000

3. sæti kr. 20.000

Besti árangur undir 2000 skákstigum kr. 15.000 (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir 1800 skákstigum kr. 15.000 (íslensk stig gilda)

 

Sigurvegarinn hlýtur auk þess nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur 2009 og farandbikar til varðveislu í eitt ár.

 

Þátttökugjöld:

kr. 3.500 fyrir 16 ára og eldri

kr. 2.000 fyrir 15 ára og yngri

 

Dagskrá mótsins:

 

1. umferð sunnudag   11. janúar  kl. 14

2. umferð miðvikudag 14. janúar  kl. 19

3. umferð föstudag     16. janúar  kl. 19

4. umferð sunnudag   18. janúar  kl. 14

5. umferð miðvikudag 21. janúar  kl. 19

6. umferð föstudag      23. janúar  kl. 19

7. umferð sunnudag    25. janúar  kl. 14

8. umferð miðvikudag 28. janúar  kl. 19

9. umferð föstudag      30. janúar  kl. 19

 

Skákþingið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

 

Skráningarform er á www.skak.is en einnig má skrá sig á taflfelag@taflfelag.is og í síma 895-5860 (Ólafur).

 

Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið sunnudaginn 1. febrúar og hefst það kl. 14.00. Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Monradkerfi.

 

  • Heimasíða mótsins
  • Keppendalisti (nú eru 53 skráðir til leiks)