Skeljungsmótið – Pörun 7. umferðar



Úrslit liggja nú fyrir í fjórum frestuðum skákum úr sjöttu umferð.  Þar með er ljóst hverjir mætast í sjöundu umferð sem fram fer á morgun, sunnudag kl. 14.  Þá mætast m.a. forystusauðirnir Hrannar og Hjörvar, Þorvarður og Lenka og Atli Freyr fær að spreyta sig gegn Ingvari Þór.

Á heimasíðu mótsins má nálgast allar upplýsingar, s.s. skákir, úrslit, stöðu, pörun, pistla og skákskýringar.