Skákmót öðlinga hefst miðvikudaginn 21. mars



Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 21. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina  auk 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Björgvin Víglundsson.

Dagskrá:
1. umferð miðvikudag 21. mars kl. 19.30
2. umferð miðvikudag 28. mars kl. 19.30
3. umferð miðvikudag 4. apríl kl. 19.30
4. umferð miðvikudag 11. apríl kl. 19.30
5. umferð miðvikudag 18. apríl kl. 19.30
6. umferð miðvikudag 25. apríl kl. 19.30
7. umferð miðvikudag 2. maí kl. 19.30

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.

Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 9. maí kl. 19:30 og að því loknu fer þar fram verðlaunaafhending fyrir bæði mót. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

Tímamörk
90 mín + 30 sek viðbót eftir hvern leik

Verðlaun
1. sæti kr. 40.000
2. sæti kr. 20.000
3. sæti kr. 10.000

Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Lokaröð keppenda ræðst af mótsstigum (tiebreaks).

Röð mótsstiga (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. Sonneborn-Berger

Þátttökugjald (greiðist með reiðufé við upphaf móts)

kr. 5.000 – Innifalið er frítt kaffi allt mótið ásamt rjómavöfflum og öðru góðgæti á lokakvöldi

SkákstjórnÞórir Benediktsson – s. 867 3109 – thorirbe76@gmail.com

Skráningarform

Skráðir keppendur