Skákkeppni vinnustaða 2012



                              
 

Upplýsingar og keppnisfyrirkomulag:

Dagsetning: föstudagur 17. febrúar kl. 19.30
Staður: Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12 (Skeifunni)
Sveitakeppni: Þetta er liðakeppni/sveitakeppni og tefla 3 í hverju liði. Vinnustaðirnir geta sent fleira ein eitt lið til keppni. Liðin verða þá auðkennd sem A-lið, B-lið o.s.frv. Hvert lið getur haft 1-2 varamenn.
Umferðir: fjöldi umferða fer eftir þátttöku (7-11 umferðir). Umhugsunartími er 10 mínútur á mann.
Keppnisfyrirkomulag: svissneskt kerfi og flestir vinningar gilda.
Verðlaun:
1.      verðlaun: Eignabikar fyrir vinnustaðinn og farandbikar til vörslu í 1 ár auk verðlaunapeninga (medalíur) fyrir keppendur

2.      verðlaun: Eignabikar fyrir vinnustaðinn auk verðlaunapeninga (medalíur) fyrir keppendur

3.      verðlaun: Eignabikar fyrir vinnustaðinn auk verðlaunapeninga (medalíur) fyrir keppendur

Þátttökugjald er kr. 15.000 á hverja sveit.
Upplýsingar veitir Ríkharður Sveinsson, stjórnarmaður í Taflfélagi Reykjavíkur: netfang: rz@itn.is gsm: 7722990.
Skráning og staðfesting þátttöku: skráning fer fram á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur,www.taflfelag.is  á sérstöku skráningarformi eða með því að hafa samband við Ríkharð Sveinsson (sjá hér að ofan). Vinnustaðir staðfesti vinsamlegast þátttöku sinna sveita með því að greiða þátttökugjaldið inn á reikning Taflfélags Reykjavíkur í síðasta lagi tveimur dögum fyrir mót, þ.e. 15. febrúar. Reikningsnúmer: 0101-26-640269. Kennitala: 640269-7669. Vinsamlegast setjið í skýringu: Skákkeppni V. og sendið greiðslukvittun á netfangið rz@itn.is
 

Verið velkomin að taka þátt í Skákkeppni vinnustaða 2012 – hlökkum til að sjá ykkur!