Rimaskóli Reykjavíkurmeistari grunnskólasveita 2011



Reykjavíkurmót grunnskólasveita fór fram 4. apríl sl. í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur. Skákmót þetta er samstarfsverkefni Íþrótta-og tómstundaráðs Reykjavíkur og Taflfélags Reykjavíkur og hefur verið haldið frá því á 8. áratug síðustu aldar. 19 sveitir frá tíu skólum borgarinnar kepptu að þessu sinni. Tefldar voru sjö umferðir eftir Monradkerfi með 10 mínútna umhugsunartíma. Veitt voru verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar svo og þrjár efstu stúlknasveitirnar. Keppt var í einum flokki og mótið var opið öllum nemendum í grunnskólum Reykjavíkur frá 1. upp í 10. bekk. 

A-sveit Rimaskóla hafði mikla yfirburði í mótinu og vann með glæsibrag og er því Reykjavíkurmeistari grunnskólasveita 2011. Sveitin fékk 25,5 vinning og tapaði einungis 2,5 vinning af 28 skákum! Í öðru sæti varð Melaskóli sem fékk 19 vinninga. Í þriðja sæti var svo A-lið Laugalækjarskóla, sem náði ekki að verja titilinn frá því í fyrra, en fékk nú 18,5 vinning.

Alls tóku fjórar stúlknasveitir þátt, þar af tvær frá Engjaskóla. Stúlknaverðlaunin féllu á þann veg að stúlknasveit Rimaskóla varð hlutskörpust með 16,5 vinning. Sveitin náði einnig frábærum árangri í heildina með því að verða í 5. sæti í mótinu. Í öðru sæti var  C-sveit Engjaskóla með 13 vinninga og þriðja sætið kom í hlut B-sveitar Engjaskóla sem fékk 12 vinninga. Árbæjarskóli var einnig með unga stúlknasveit sem á framtíðina fyrir sér, en sveitin lenti 4. sæti að þessu sinni með 10 vinninga.  

Heildarúrslit urðu sem hér segir:    

1. Rimaskóli A-sveit 25,5 v. af 28.

2. Melaskóli 19 v.

3. Laugalækjarskóli A-sveit 18,5 v.

4. Hólabrekkuskóli 17,5 v.

5. Rimaskóli – stúlkur 16,5 v.

6. Hagaskóli A-sveit 16 v.

7. Rimaskóli B-sveit 16 v.

8. Engjaskóli A-sveit 15,5 v.

9. Árbæjarskóli A-sveit 14 v.

10. Sæmundarskóli 14 v.

11. Hagaskóli C-sveit 13,5 v.

12. Laugalækjarskóli B-sveit 13 v.

13. Engjaskóli C-sveit – stúlkur 13 v.

14. Rimaskóli C-sveit 12,5 v.

15. Hagaskóli B-sveit 12 v.

16. Engjaskóli B-sveit – stúlkur 12 v.

17. Langholtsskóli 11,5 v.

18. Árbæjarskóli – stúlkur 10 v.

19. Álftamýrarskóli 10 v. 

 

 

 

 

 

Í sigurliði Rimaskóla A-sveitar eru:

1. Dagur Ragnarsson

2. Oliver Aron Jóhannesson

3. Jón Trausti Harðarson

4. Kristinn Andri Kristinsson

 

Í silfurliði Melaskóla eru:

1. Veronika Steinunn Magnúsdóttir

2. Leifur Þorsteinsson

3. Dagur Logi Jónsson

4. Smári Arnarson

 

Í bronsliði Laugalækjarskóla A-sveitar eru:

1. Rafnar Friðriksson

2. Jóhannes Kári Sólmundarson

3. Arnar Ingi Njarðarson

4. Þorsteinn Muni Jakobsson

 

Keppnin um Reykjavíkurmeistara stúlknasveita.

 

Í sigurliði Rimaskóla – stúlkur eru:

1. Hrund Hauksdóttir

2. Nansý Davíðsdóttir
3. Svandís Rós Ríkharðsdóttir
4. Ásdís Birna Þórarinsdóttir
Vm: Tinna Sif Aðalsteinsdóttir

 

Í silfurliði Engjaskóla C-sveitar – stúlkur eru:

1. Aldís Birta Gautadóttir

2. Sara Hanh Viggósdóttir

3. Sara Sif Helgadóttir

4. Sóley Ósk Einarsdóttir

Í bronsliði Engjaskóla B-sveitar – stúlkur eru:

1. Elin Nhung Viggósdóttir

2. Honey Grace Bergamento

3. Rósa L. Robertid

4. Ásdís Eik Aðalsteinsdóttir

Vm. Unnur Ósk Burknad

 
Skákstjórn önnuðust Ólafur H. Ólafsson og Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir.

Mótsstjóri er Soffía Pálsdóttir, ÍTR.