Reykjavíkurmót grunnskólasveita hefst 12. febrúar með keppni 1.-3. bekkjar



Reykjavíkurmót-grunnskóla-2017

Reykjavíkurmót grunnskólasveita hefst í húsnæði TR að Faxafeni 12 mánudaginn 12. febrúar kl. 16.30 með keppni 1.-3. bekkja. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt að þessu sinni; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.

Keppni 4.-7. bekkjar og 8.-10. bekkjar fer fram viku seinna, mánudaginn 19. febrúar.

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 5 mínútur fyrir hverja skák og bætast 3 sekúndur við eftir hvern leik (5+3). Allir grunnskólar Reykjavíkurborgar eru hvattir til þess að senda skáksveitir í mótið. Engar takmarkanir eru á fjölda skáksveita og er skáksveitum hvers skóla styrkleikaraðað með bókstöfum (a-sveit, b-sveit, c-sveit og svo framvegis). Í hverri skáksveit tefla 4 keppendur og má hver sveit hafa 0-2 varamenn. Keppanda er heimilt að tefla í eldri flokki en aldur hans segir til um, en þó má einungis tefla í einum flokki (sem dæmi þá má keppandi í 3.bekk tefla í flokki 4.-7.bekkjar, en hann getur þá ekki teflt í flokki 1.-3.bekkjar). Mikilvægt er að liðsstjóri fylgi liðum hvers skóla og er æskilegt að hver liðsstjóri stýri ekki fleiri en þremur liðum.

Dagskrá keppninnar:

  • Mánudagur 12.febrúar kl.16:30-19:00; 1.-3.bekkur.
  • Mánudagur 19.febrúar kl.16:30-19:00; 4.-7.bekkur.
  • Mánudagur 19.febrúar kl.19:30-22:00; 8.-10.bekkur.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Einnig fær efsta stúlknasveit hvers flokks verðlaun.

Skráning fer fram í gegnum skráningarform sem finna má í gula kassanum á skak.is. Skráningu í  mót 1.-3.bekkjar lýkur sunnudaginn 11.febrúar klukkan 21:00. Skráningu í hin tvö mótin lýkur sunnudaginn 18.febrúar klukkan 21:00. Ekki verður hægt að skrá lið á mótsstað. Hér má fylgjast með skráningunni.