Öðlingamótið: Einar vann eina enn – Einn á toppnum



odl15__r5 (9)

Einar Valdimarsson (1945) fer mikinn á Skákmóti öðlinga og er nú einn efstur með fullt hús vinninga eftir sigur á Guðlaugu Þorsteinsdóttur (1943) í fimmtu umferð.  Einar hefur vinningsforskot á þá félaga, Þorvarð F. Ólafsson (2222) og Halldór Pálsson (2030), sem höfðu betur gegn Haraldi Baldurssyni (1984) og Eiríki K. Björnssyni (1959).

odl15__r5 (11)

Athyglisvert er að skákirnar á fyrstu fjórum borðunum unnust allar á svart og ekkert jafntefli leit dagsins ljós og raunar hefur ekki verið samið um skiptan hlut síðan í annarri umferð.  Nokkuð merkilegt í ljósi þess hversu jafnt mótið er en sýnir vel stríðshaminn sem keppendur eru í enda mætir þessi hópur skákmanna- og kvenna ekki í Faxafenið til þess eins að kitla taflmennina lítið eitt.

odl15_r5__9_

Keppendur brýna nú sverð sín fram til næsta miðvikudagskvölds þegar sjötta og næstsíðasta umferðin fer fram en þá mætir forystusauðurinn Magnúsi Kristinssyni (1765).  Á öðru borði verður mikilvæg barátta á milli Þorvarðar og Halldórs og á því þriðja mætir Guðlaug Ögmundi Kristinssyni (2030).  Tímavélarnar verða ræstar nákvæmlega á slaginu 19.30 og eru áhugasamir hvattir til að skella sér í Skákhöllina þegar það gerist enda stemningin geggjuð.  Kostar ekkert að líta í Faxafenið, heitt á könnunni og alles.

odl15__r5 (8)