Mykhaylo Kravchuk og Róbert Luu efstir fyrir síðustu umferð



Spennan í skákhöllinni var mikil þegar 4.umferð Bikarsyrpunnar fór fram. Á efstu tveimur borðunum voru gerð jafntefli og það nýtti Róbert Luu sér. Hann vann Halldór Atla Kristjánsson eftir miklar sviptingar og náði þar með Mykhaylo Kravchuk að vinningum. Báðir hafa þeir 3,5 vinning. Sex skákmenn koma í humátt á eftir með 3 vinninga.

Fimmta og síðasta umferð hefst klukkan 14 í dag.

Úrslit 4.umferðar má finna hér.