Mykhaylo Kravchuk efstur með fullt hús eftir 3 umferðir



4.umferð Bikarsyrpunnar stendur nú yfir í skákhöll félagsins og er hart barist á mörgum borðum. Mykhaylo Kravchuk leiðir mótið með fullt hús eftir góðan sigur á Halldóri Atla Kristjánssyni þar sem Mykhaylo setti saman vel útfærða og laglega fléttu. Í humátt á eftir Mykhaylo koma Þorsteinn Magnússon, Óskar Víkingur Davíðsson, Guðmundur Agnar Bragason og Róbert Luu, allir með 2,5 vinning. Nokkuð var um óvænt úrslit í 3.umferð og má þar helst nefna sigur Freyju Birkisdóttur á Ólafi Erni Ólafssyni. Einnig vann Gabríel Sær Bjarnþórsson góðan sigur á Eldari Sigurðarsyni.

Úrslit 3.umferðar má finna hér.

Pörun 4.umferðar má finna hér.