KORNAX mótið 2012 – Skákþing Reykjavíkur hefst 8. janúar



 
KORNAX mótið 2012 – Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 8. janúar kl. 14. Tefldar verða 9 umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk 1½ klst. á alla skákina auk 30 sek. á leik. Umferðir fara fram á miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30 og á sunnudögum kl. 14.  Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Verðlaun:

1. sæti kr. 100.000

2. sæti kr. 50.000

3. sæti kr. 25.000

Besti árangur undir 2000 skákstigum kr. 10.000 (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir 1800 skákstigum kr. 10.000 (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir 1600 skákstigum – bókaverðlaun (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir stigalausra – bókaverðlaun

Sigurvegarinn hlýtur auk þess nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur 2012 og farandbikar til varðveislu í eitt ár.  Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Björn Þorfinnsson.

Þátttökugjöld:

kr. 4.000 fyrir 16 ára og eldri

kr. 2.000 fyrir 15 ára og yngri

Dagskrá:

1. umferð sunnudag   8. janúar  kl. 14

2. umferð miðvikudag 11. janúar  kl. 19.30

3. umferð föstudag     13. janúar  kl. 19.30

4. umferð sunnudag   15. janúar  kl. 14

5. umferð miðvikudag 18. janúar  kl. 19.30

6. umferð föstudag      20. janúar  kl. 19.30

7. umferð sunnudag    22. janúar  kl. 14

8. umferð miðvikudag 25. janúar  kl. 19.30

9. umferð föstudag      27. janúar  kl. 19.30

 

Skákþingið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Skráning fer fram á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur, www.taflfelag.is
Hægt er að fylgjast með skráningu hér.

 
Athugið að skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. kl. 13.45.