Kennsla á vorönn hefst laugardaginn 6.janúar



Taflfelag_RV_Logo

Kennsla á vorönn 2018 hefst laugardaginn 6.janúar og verður stundataflan óbreytt frá síðastliðnu hausti. Sem fyrr er þjálfarateymi félagsins skipað mörgum af reynslumestu skákkennurum landsins.

Skákæfingar Taflfélags Reykjavíkur eru fjölbreyttar og sérstaklega hannaðar til þess að mæta þörfum sem flestra áhugasamra skákbarna og unglinga. Á æfingum félagsins fá nemendur markvissa kennslu og persónulega leiðsögn sem nýtist þeim sem grunnur að framförum í skáklistinni. Æfingarnar verða sem fyrr flokkaskiptar eftir getu og aldri.

Æfingagjöld á vorönn 2018 haldast óbreytt frá því sem verið hefur undanfarin misseri. Gjald fyrir æfingahópa sem hittast einu sinni í viku er 8.000 kr. Gjald fyrir æfingahópa sem hittast tvisvar í viku er 14.000 kr. Líkt og áður er veittur systkinaafsláttur í formi 50% afsláttar fyrir annað barnið, en þriðja barnið æfir frítt. Börn geta sem fyrr tekið þátt í opnu laugardagsmóti (kl.14-16) án endurgjalds.

Mikilvægt er að skrá þátttakendur á æfingarnar með því að fylla út skráningarform sem finna má á vef félagsins. Öllum er þó frjálst að prófa eina æfingu án skuldbindingar. Foreldrar geta nýtt sér Frístundakort Reykjavíkurborgar fyrir börn/unglinga sem eru með lögheimili í Reykjavík.

Allar nánari upplýsingar sem og leiðbeiningar um hvaða æfingar henta hverjum og einum veita skákþjálfarar félagsins.

IMG_8942

Á vorönn 2018 er boðið upp á sex mismunandi skákæfingar:

Manngangskennsla: Lau kl.10:40-11:00 (frítt) – Hefst 6.janúar.IMG_4475

Á þessari æfingu verður eingöngu manngangurinn kenndur. Þessi æfing er hugsuð fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báðum kynjum, sem vilja læra mannganginn frá grunni eða vilja læra tiltekna þætti manngangsins betur. Börnin munu læra að hreyfa alla mennina auk þess sem þau læra reglur sem gilda um hrókeringu og framhjáhlaup. Þegar barn hefur náð góðum tökum á mannganginum að mati skákþjálfara þá er það tilbúið að taka næsta skref sem er Byrjendaæfing. Umsjón með æfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 697 3974).

Byrjendaæfing: Lau kl.11:15-12:15 (8.000kr) – Hefst 6.janúar.IMG_4470

Þessi æfing er hugsuð fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báðum kynjum, sem kunna allan mannganginn og þyrstir í að læra meira og ná betri tökum á skáklistinni. Á æfingunni tefla börnin hvert við annað í bland við létta kennslu. Börnin læra almennar reglur sem gilda á skákmótum og þau venjast því að tefla með klukku. Auk þess munu börnin læra grunnatriði á borð við liðsskipan og einföld mát. Umsjón með æfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 697 3974).

 

Stúlknaæfing: Lau kl.12:30-13:45 (8.000kr) – Hefst 6.janúar.IMG_4491

Stúlknaæfingin hefur fest sig í sessi sem ein fjölmennasta skákæfing TR. Fyrirkomulag æfingarinnar er óbreytt frá því sem verið hefur síðustu misseri og eru allar stúlkur á grunnskólaaldri velkomnar að slást í hópinn. Á skákæfingunum er lögð áhersla á ýmis taktísk atriði og mátstöður í miðtafli og endatafli. Lögð er áhersla á að stelpurnar þrói með sér skilning á stöðuuppbyggingu, svo sem liðsskipan í byrjun, úrvinnslu í miðtafli og læri að ljúka skákinni með máti. Tímarnir innihalda sitthvað af öllu þessu: innlögn og umræður, skákþrautir og taflmennsku, sköpun og gleði. Umsjón með æfingunum hefur Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (sími: 862 6290).

 

Laugardagsmót: Lau kl.14:00-16:00 (frítt) – Hefst 6.janúar.IMG_4508

Laugardagsæfingar TR hafa verið flaggskip félagsins undanfarna áratugi. Á þessum æfingum er sett upp 6-7 umferða skákmót og tefla börnin allan tímann. Laugardagsmótin eru fyrir bæði stráka og stelpur á grunnskólaaldri, sem og elstu börn leikskóla, og er börnum frá öðrum taflfélögum velkomið að slást í hópinn og tefla með. Börnin öðlast þjálfun í að tefla í skákmóti og læra um leið allar helstu skákreglur, auk þess sem þau læra smám saman að tileinka sér þá siði og venjur sem ríkja í skáksal. Þessi mót verða reiknuð til hraðskákstiga og eru því ekki síður kjörin fyrir reynslumeiri nemendur sem vilja klifra upp stigalistann. Mótin eru án endurgjalds. Umsjón með æfingunum hefur Gauti Páll Jónsson (sími: 691 9937).

 

Framhaldsæfing:  Þri kl.17:00-18:30 & Sun kl.10:30-12:00 (14.000kr) – Hefst 7.janúar.IMG_4471

Framhaldsæfingin verður með svipuðu sniði frá því sem var síðastliðið haust. Æfingunni er ætlað að koma til móts við þau skákbörn TR, af báðum kynjum, sem hafa mikinn áhuga á að taka framförum í skáklistinni. Þessar æfingar eru því hugsaðar fyrir börn sem hafa að lágmarki reynslu af að tefla með klukku og kunna einföld mát líkt og að máta með kóngi og hrók gegn stökum kóngi. Þessar æfingar eru einnig ætlaðar þeim börnum sem eru lengra komin og tefla reglulega í kappskákmótum. Æfingarnar eru á sunnudögum og þriðjudögum. Umsjón með æfingunum hefur Björn Ívar Karlsson (sími: 692 1655).

 

Afreksæfing: Lau kl.16:10-17:40 & Fim kl.17:00-18:30 (14.000kr) -Hefst 6.janúar.IMG_4251

Afreksæfingin verður með hefðbundnu sniði frá því sem verið hefur og er æfingin hugsuð fyrir stigahæstu ungmenni TR af báðum kynjum. Á þessum æfingum er mikil áhersla lögð á byrjanafræði og krefjast æfingarnar þess að nemendur geti unnið sjálfstætt. Æft er tvisvar í viku, á fimmtudögum og laugardögum. Umsjón með æfingunum hefur Daði Ómarsson (sími: 615 4273).