Jón Viktor genginn í raðir Taflfélags Reykjavíkur



Alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson er genginn til liðs við Taflfélag Reykjavíkur. Hann hefur undanfarin ár verið liðsmaður Taflfélags Bolungarvíkur en snýr nú á heimaslóðir í Faxafenið.

Jón Viktor sem hefur einn áfanga að stórmeistaratitli hefur unnið marga glæsta sigra við skákborðið. Hann varð Íslandsmeistari í skák árið 2000 og var í sigurliði Íslands á Ólympíumóti undir 16 ára á Kanaríeyjum árið 1995. Fimm sinnum varð hann Norðurlandameistari í skólaskák en einnig hefur hann unnið titilinn Skákmeistari Reykjavíkur fimm sinnum og jafnoft orðið hraðskákmeistari Íslands. Jón Viktor varð alþjóðlegur meistari árið 1997 þá 17 ára gamall.

Taflfélag Reykjavíkur býður Jón Viktor hjartanlega velkominn og hlakkar til að sjá hann tefla fyrir félagið á komandi misserum.