Jólaskákæfing laugardaginn 13. des!



Á laugardaginn kemur verður jólaskákæfing sem jafnframt verður síðasta laugardagsæfing ársins!

 

 

Þá ætlum við að:

  • 1) tefla, tefla, tefla
  • 2) bjóða upp á jólahressingu
  • 3) veita viðurkenningar fyrir bestu mætingu/ástundun á laugardagsæfingunum á þessari önn (í þremur aldurshópum)
  • 4) veita viðurkenningar fyrir samanlögð stig fyrir ástundun og árangur á æfingamótunum
  • 5) gefa nýjum félagsmeðlimum Taflfélags Reykjavíkur skákbók að gjöf

 Verið velkomin á jólaæfinguna á laugardaginn kl. 14-16!