Hraðskákmót TR fer fram sunnudaginn 18. október



Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið í húsnæði félagsins að Faxafeni 12 sunnudaginn 18. október kl. 14:00. Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Swiss kerfi og er umhugsunartími 5 mínútur á skák. Mótið er jafnan vel sótt, en fjörutíu þátttakendur voru með í fyrra.

Þátttökugjald kr 500 fyrir 16 ára og eldri, en frítt fyrir 15 ára og yngri. Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.

Að loknu hraðskákmótinu fer fram verðlaunaafhending fyrir Haustmót Taflfélags Reykjavíkur.

Í fyrra sigraði Róbert Lagerman en hann hlaut 12 vinninga í skákunum fjórtán.  Kjartan Maack er núverandi Hraðskákmeistari félagsins eftir harða baráttu í fyrra.