Hraðskákmót T.R. 2009



Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið í húsnæði félagsins að Faxafeni 12 sunnudaginn 18.október kl. 14:00

Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Swiss Perfect kerfi. Umhugsunartími 5 mín á skák.

 

Þátttökugjald kr 500 fyrir 16 ára og eldri, en frítt fyrir 15 ára og yngri.

 

Þrenn verðlaun verða i boði.

Að loknu hraðskákmótinu fer fram verðlaunaafhending fyrir nýafstaðið Haustmót.