Hraðskákmót Reykjavíkur hefst sunnudaginn 5.febrúar kl.13



Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 5.febrúar og hefst taflið kl. 13.

Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 4+2 (4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Þátttökugjald er 1.000kr. Frítt er í mótið fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Skráning fer fram á skákstað og lýkur henni klukkan 12:50.

Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir Skákþing Reykjavíkur.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk þess sem krýndur verður Hraðskákmeistari Reykjavíkur. Ríkjandi meistari er Róbert Lagerman. Undanfarin 10 ár hafa sex skákmeistarar borið titilinn Hraðskákmeistari Reykjavíkur, þar af einn stórmeistari og fjórir Fídemeistarar:

2016: Róbert Lagerman 2015: Dagur Ragnarsson 2014: Róbert Lagerman 2013: Oliver Aron Jóhannesson 2012: Davíð Kjartansson 2011: Hjörvar Steinn Grétarsson 2010: Torfi Leósson 2009: Hjörvar Steinn Grétarsson 2008: Davíð Kjartansson 2007: Davíð Kjartansson.

IMG_7907

Verðlaunahafar. Róbert Lagerman er ríkjandi Hraðskákmeistari Reykjavíkur.