Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram á sunnudag



Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 9. febrúar kl. 14.

Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Sviss Perfect kerfi. Umhugsunartími verður 5 mínútur á skák.

Þátttökugjald er kr 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri.

Þrenn verðlaun í boði.

Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir Skákþing Reykjavíkur 2014.

Núverandi hraðskákmeistari er Oliver Aron Jóhannesson.